þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Eins og þetta byrjaði vel hjá hv. þingmanni þá varð hann að skemma það í lokasetningunni og þykjast hafa skilið orð mín sem svo að ég ætlaði ekki að virða þjóðarviljann. Þá bara verð ég að spyrja aftur þótt hv. þingmaður hafi ekki tækifæri til að koma hér aftur upp: Þjóðarviljann um hvað? Það sem hæstv. ráðherrar halda fram að málið snúist um er allt annað en raunveruleikinn, Evrópusambandið, heimurinn allur segir að það snúist um. Það snýst um það hvort eigi að stefna á að senda Ísland inn í Evrópusambandið og hefja þá þegar aðlögun að því.
Að því sögðu vil ég þakka hv. þingmanni fyrir að sýna viðleitni til að svara spurningu minni sem honum bar engin skylda til að svara, hann var að svara mér, ólíkt hæstv. ráðherrum sem, þegar þeim ber skylda til að svara, svara bara alls ekki.