þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir afbragðsgóða fimm mínútna ræðu. Ég tek undir að það er ekki gott að fá svona stuttan ræðutíma og þar sem ég hef nú bara tæpa mínútu ætla ég að reyna að koma mér að efninu. Hv. þingmaður talaði um stöðuna í Evrópusambandinu. Staðan er náttúrlega bara mjög alvarleg. Atvinnuleysi ungs fólks er allt upp í 25%, Frakkland er í stórkostlegri efnahagslegri krísu og ef bætt er við óuppgerðu lífeyrissjóðakerfi þess þá er þetta nánast gjaldþrota ríki. En það hefur oft verið talað um hvað það sé gott að búa í Evrópusambandinu, lágir vextir og gott að eignast íbúð. Ég sá gamlan skólabróður minn sem er búinn að búa þarna í þó nokkuð mörg ár og hann segir hér á fésbókinni, og þetta er í Hollandi:
„Eitt get ég alveg sagt á hreinu. Þeir sem vinna hér láglaunastörf munu aldrei geta átt neitt og leigja og bíða eftir leigustýrðri félagslegri íbúð í tíu ár að meðaltali.“
Þetta er draumaríki Evrópusambandsins, Holland. Það er ekki bara vaxtastigið, það eru launin og kaupmátturinn sem skipta máli. (Forseti hringir.) Er ekki hv. þingmaður sammála því að svona hlutir þurfa líka að vera á hreinu gagnvart þjóðinni áður en hún ætlar að fara að greiða hér atkvæði um hvort við eigum að halda áfram að vita meira?