157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:22]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Jú, þetta eru atriði sem ég hefði gjarnan viljað komast í að ræða í seinni ræðu minni en eftir atburði dagsins og síðustu daga var eiginlega óhjákvæmilegt að reyna að draga það fram hvernig ríkisstjórnin væri að nálgast þetta. Þetta er hárrétt sem hv. þingmaður segir og eitthvað sem við munum þurfa að ræða í vinnu nefndarinnar auðvitað, í fjölmiðlum og á ýmsum vettvangi næstu misserin og svo aftur í síðari umræðu um þetta mál. Fullyrðingarnar um kostina við aðild að Evrópusambandinu standast sjaldnast skoðun. Hlutfall af ráðstöfunartekjum hér á Íslandi sem fer í húsnæði er til að mynda lægra heldur en í mjög stórum hluta Evrópusambandsríkja og launakjörin auðvitað og velferðin eru miklu minni í flestum þeim löndum, ja, eiginlega öllum nema Lúxemborg, heldur en þau eru á Íslandi og það þrátt fyrir fullveldið og eigin gjaldmiðil sem þvælist ekki meira fyrir en svo, frú forseti, að við höfum komið okkur út úr ótrúlegustu vandræðum og náð að auka áfram velferð í landinu þangað til þessi ríkisstjórn tók við.