þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu og sömuleiðis óska honum til hamingju með að hafa sært stjórnarliða upp í andsvar. Það eru væntanlega mestu skoðanaskipti sem við munum eiga við þá hér í dag, sýnist mér. Ég ætla ekki að gera annað en að hrósa hv. þm. Ingvari Þóroddssyni sem alla vega tekur þátt, það á ekki að skamma þá sem gera eitthvað í því. En í orðaskiptum þarna á milli var enn og aftur fullyrt af hálfu stjórnarliða að þetta snerist ekki um Evrópusambandið heldur bara hvort við ættum að sækja um. Þekkir hv. þingmaður einhver dæmi þess að eitthvert ríki hafi lagt út í þann kostnað og þá fyrirhöfn, bæði hjá sjálfu sér og í Evrópusambandinu, að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hafi ekki verið að meina það, meira bara að kanna hvað væri í gangi? Það eru fullt af löndum í Evrópu. Hefur eitthvert ríki einhvern tíma sótt um aðild að Evrópusambandinu en ef einhver hefur spurt hvort það vildi vera í Evrópusambandinu sagt: Það bara kemur í ljós, það var svo lítið að gera að við ákváðum (Forseti hringir.) þetta. Af hverju ekki þetta eins og eitthvað annað? Veit hv. þingmaður um eitthvert slíkt dæmi?