157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrst er það að segja varðandi aðdragandann og þessa greinargerðarmynd sem liggur hér fyrir að Þór og Danni í Nýju lífi hefðu kallað þetta þunnildi sem kaupmaðurinn hefði ekki einu sinni boðið kettinum sínum upp á. Í þessari greinargerð er eiginlega ekki neitt sem skiptir máli, sem væri til þess að skapa einhverja tiltrú okkar hér í þinginu sem höfum efasemdir um þessa vegferð á því að það eigi í raun að leggja í ágúst spurningu fyrir almenning sem almenningur hefur einhvern möguleika á að skilja hvað í felst. Mér finnst hafa verið mjög illa að þessum undirbúningi öllum staðið. Og aðdragandinn, þetta kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum þarna á föstudegi á miklum hallelúja PR-blaðamannafundi og svo hefjast umræður um málið á mánudegi. Engin samráðsgátt, ekkert samráð við utanríkismálanefnd og áfram mætti telja. Þetta er allt á sömu bókina lært.

Beinn kostnaður við fyrra bjölluat var upp á 1,5 milljarða á núvirði en ég fullyrði að beini kostnaðurinn er bara brot af heildarkostnaðinum. Ég held að óbeini kostnaðurinn sé margfaldur. Hann felst m.a. í því sem ég kom inn á í ræðu minni áðan, að ríkisstjórnin mun ekki sinna verkefnum með þeim hætti sem æskilegt væri og nauðsynlegt hvað varðar til að mynda efnahagsmálin á meðan þessi aðlögunarvinna er í gangi. Það veldur bæði heimilum og fyrirtækjum landsins umtalsverðu tjóni þannig að raunverulegur kostnaður af þessari vegferð er margfaldur hinn beini. Eins og liggur fyrir, ef ég skil tölurnar rétt, verðum við nettógreiðandi upp á að jafnaði 30–40 milljarða á ári en það er engin trygging fyrir því að sú tala hækki ekki verulega. — Ég kem kannski inn á það sem út af stendur hjá mér í seinna andsvari.