157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:58]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Hver á þennan bústað og hvert erum við að fara? Frú forseti. Ég er enn þá staddur á þeim stað að hugsa til kvikmyndanna Nýs lífs, Dalalífs og Löggulífs. Ég ætla að dvelja við Nýtt líf og Dalalíf til þess að setja þetta í samhengi við raunveruleikann og hver blekkingaleikurinn var í myndunum. Það var dregin upp falleg mynd, t.d. í Dalalífi, af því að menn elskuðu það að vera útivinnandi menn en tókust síðan aldrei á við raunveruleikann, komu bara til að rétt kikka inn og láta gott af sér leiða í smástund. Mér finnst það vera svolítið eins og vegferð ríkisstjórnarinnar hér; menn halda að menn geti farið þarna, fengið það sem okkur sýnist, það verði allt gert fyrir okkur af því að við erum svo sjálfstæð og sterk þjóð með frábæra meðgjöf, frábærar auðlindir og allt það. Umræðan virðist vera á þann veg að stjórnarliðum finnist óþarfi að taka þátt í henni vegna þess að það blasi svo við eins og það blasti við persónu sem Sigurður Sigurjónsson lék í Dalalífi, þegar hann mætti í sveitina og rak niður girðingarstaur með berum höndum og kallaði síðan á ensku „I love it“. En það er akkúrat það sem við erum að horfa á í þessari vegferð. Það er ekkert á bak við hana. Það er ekkert á bak við það hvað verið er að boða og það er stóra vandamálið og það er það sem þjóðinni er boðið upp á. Það á bara að bjóða þjóðinni upp á að segja já eða nei án þess að vita nokkuð. Þetta er svona svipað og þegar menn eru kallaðir til verka í sveitum og vita ekkert hvað þeir ætla að gera.