þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir prýðisgott andsvar. Jú, eins og ég sagði í ræðunni áðan þá kann ég ekki að meta þennan hræðsluáróður sem fram kemur í þingsályktunartillögunni og ekki síst hvað snýr að öryggis- og varnarmálum. Það er eins og ríkisstjórnin hafi gleymt því að við erum í NATO, við eigum aðild að Atlantshafsbandalaginu, varnarbandalaginu NATO. Við erum með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin sem er einn mikilvægasti samningur sem við höfum gert. Menn þurfa líka að átta sig á því að það er bara eitt ríki í heiminum sem getur varið Ísland. ESB er ekki ríki, það er ríkjabandalag. Það ríki sem getur varið Ísland er Bandaríkin og þess vegna furða ég mig á því hversu illa ríkisstjórnin hefur sinnt samskiptum við Bandaríkin. Hvað heyrði ég hérna um daginn? Er ekki 10-1, hefur utanríkisráðherra ekki farið hátt í tíu eða jafnvel fleiri ferðir til Brussel? (NTF: 8-1. ) Hún fór bara í síðustu viku til Ameríku, til Washington, og átti þar fundi en ekki einu sinni með ráðherrum. Það er nú öll áherslan á samskipti við Bandaríkin.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna vegna þess að þetta er mikilvægt. Hér er látið í veðri vaka að það sé eitthvert skjól í ESB hvað varðar m.a. öryggis- og varnarmál og ég er að horfa á hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur sem er eini stjórnarþingmaðurinn sem er hér í þingsal. Hér er látið í veðri vaka að það sé eitthvert skjól í ESB og menn verða bara að átta sig á því að það er það alls ekki.