þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við fengum að heyra það hér fyrr í dag, eins og undanfarna viku, að ríkisstjórnin ætlar að keyra þetta risastóra mál á einum frasa: Treystið þið ekki þjóðinni? Í stað þess að koma heiðarlega fram um hvað við þjóðin erum að fara að kjósa um hefur hæstv. forsætisráðherra ítrekað neitað að svara lykilspurningu, spurningunni sem var spurt hér í dag í óundirbúnum fyrirspurnum, spurningu sem fjölmiðlar hafa ítrekað reynt að fá svar við, sem er: Ef þjóðin segir já í ágúst, munum við byrja að aðlaga okkur að Evrópusambandinu samhliða viðræðunum? Af einhverjum ástæðum kýs hæstv. forsætisráðherra þessa lands að svara ekki þessari spurningu. Þess í stað er snúið út úr. En af hverju er snúið út úr? Jú, því það liggur fyrir að það er reyndin að við munum þurfa að byrja að setja á fót stofnanir og gera ýmsar ráðstafanir sem fela í sér að stækka báknið. Það er alveg skýrt og þannig var það síðast.
Af hverju tekur hæstv. forsætisráðherra þátt í þessum blekkingum? Ég á ekki svar við því. En ég vona að hæstv. forsætisráðherra svari þessari lykilspurningu til að byggja upp eitthvert traust á þessu ferli. Á vef utanríkisráðuneytisins er hægt að sjá hvernig við þurftum að byrja að aðlagast síðast, hvernig Evrópusambandið lýsti því að við þyrftum að stækka báknið og aðlaga okkur á ýmsan hátt ef viðræðum yrði áfram haldið. Er eitthvað breytt í þessum efnum? Nei, ekki samkvæmt Evrópusambandinu og ríkisstjórnin er skýr um að framhald á ferlinu, sem var hafið, muni halda áfram. En hvaða ferli er það? Það er alveg á hreinu því það stendur svart á hvítu í fyrri þingsályktun. En á vef Alþingis stendur, með leyfi forseta:
„Þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar.
Samþykkt á Alþingi 16. júlí 2009.“
Þetta er það sem við erum að halda áfram með: Umsókn um aðild Íslands að ESB. Það stendur svart á hvítu. Þið þurfið ekki að trúa mér, minni hlutanum eða meiri hlutanum því að þetta er alveg skýrt í þingsályktuninni og það er ferlið sem við erum að halda áfram með. Við þurfum að ræða hvað felst í aðild að Evrópusambandinu því það er vegferðin sem við erum að fara í ef meiri hlutinn kýs já í ágúst. Þá tekur við hvernig við ætlum að aðlaga okkur að sambandinu og næsta atkvæðagreiðsla mun bara snúast um þann tímaramma, ekki einhvern pakka því við vitum hvað ESB er. Ef við hugsum málið bara rökrétt, hvað haldið þið að hin 27 ríkin myndu segja ef allt í einu kæmi litla Ísland og fengi undanþágur í lykilmálum? Nú verða þessar blekkingar að hætta og við verðum að ræða innihaldið, hvað við þurfum að gefa frá okkur og hvaða mögulegu kostir eru fyrir okkur við inngöngu.
Höfum það á hreinu: Við förum ekki inn fyrr en við sjálf erum búnir að ná tökum á verðbólgunni. ESB bjargar okkur ekki í þeim málum. Evrópusambandið er í stóru myndinni 35 kaflar af endalausum lögum og reglum. Það virðist ekki á hreinu hvort kaflarnir sem var búið að opna væru 11 eða 13 en það liggur fyrir að þeir kaflar sem hafa verið opnaðir eru nokkurn veginn kaflarnir sem EES nær utan um. Fáum við að sjá þessa kafla áður en er kosið? Eru þeir eitthvert leyndarmál? Því þetta er jú bara framhald á þeim viðræðum, er það ekki? Hæstv. forsætisráðherra sagði fyrr í dag að óskorað forræði yfir auðlindum Íslands væri algjört skilyrði. Það liggur fyrir að það mun ekki ganga og hún hlýtur að vita það sjálf. En af hverju að segja svona? Kannski er það til að segja seinna að því hafi verið náð en í raun verða það bara X mörg ár í einhvers konar aðlögun sem við tökum áður en af því verður. Eða trúir hæstv. forsætisráðherra þessu? Ef svo er þá eiginlega veit ég ekki hvort sé verra, að hún trúi þessu eða að hún ætli að blekkja með þessu.
En af hverju að fara í þessa vegferð? Hvað telja forystumenn þessarar ríkisstjórnar að við gætum mögulega náð fram sem væri svo stórkostlega gott umfram EES-samninginn? Ég veit ekki hvað það er. Ég get gert mér í hugarlund hvað meiri hlutinn vill ná fram en þau mæta ekki hér sjálf og hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að hún ætli ekki að mæta til að ræða þetta. Hvað er það sem meirihlutaþingmenn telja, meirihlutaþingmenn sem hafa það á stefnuskrá sinni að ganga inn í Evrópusambandið — hvað er það sem þið viljið ná fram? Væri ekki eðlilegra að ræða það og ræða innihaldið til að þessi umræða verði svona ja, bara betri? Það liggur fyrir að við erum nú þegar að innleiða reglugerðir frá Evrópusambandinu á færibandi vegna EES-samningsins. Það hefur verið bent á, m.a. af þessari ríkisstjórn og flestum, að við séum að gullhúða of mikið af þeim. Við erum alla vega ekki að eyða tíma núna í að vinda ofan af því á meðan við erum í þessu. Það hefur verið sagt hér að þetta sé um 14% af reglum sem við erum búin að innleiða. Samt finnst nú flestum að regluverk á Íslandi sé of íþyngjandi en það finnst Evrópusambandinu ekki því við erum sirka búin að innleiða 14% af því.
Svo langaði mig, því tíminn líður svo hratt — hvað er Evrópusambandið? Það er margt um það að segja. Hins vegar liggur alveg fyrir að það er gígantískt apparat. Það er risastórt bákn sem er farið að snúast mjög mikið í kringum sjálft sig. Mig langar að taka nokkur dæmi. Við erum búin að heyra þetta. Þetta er bara svona af því að Evrópusambandið er duglegt að finna upp á ýmsu til að leggja okkur borgurum línurnar. Það var nú fræg sagan um bakarann þar sem mátti ekki nota meira en X mikið af salti á móti sykri. Gúrkurnar, það var nú frægt, mátti ekki selja nema þær beygðust á ákveðinn hátt. Þeir undu nú ofan af því. Það var náttúrlega ævintýraleg reglugerð. Bananarnir máttu bara líta út á ákveðinn hátt. Það var ekki undið ofan af því heldur var málið flækt með því að setja inn nokkra kafla, þ.e. bananar í mestu gæðum þurfa að vera 14 cm langir og 27 millimetra þykkir. Svo voru reglur um ólífuolíu á borðum veitingahúsa. Þá var skilyrði að það mætti bara nota einnota flöskur og alls ekki fylla flöskurnar aftur. Eftir mikla gagnrýni var þetta dregið til baka en bara að hluta þannig að flækjustigið hélst inni.
Svo er bann við öflugum heimilistækjum, við þekkjum það öll. Ryksugurnar mega ekki vera of öflugar út af orkusparnaði. Er það eitthvað sem við þurfum sérstaklega? Því miður er eiginlega ekkert annað í boði fyrir okkur en að kaupa þessar aflminni ryksugur. Ég held að heimili þessa lands myndu vilja vera undanskilin ýmsu svona rugli því að nóg erum við búin að innleiða án þess að vera komin inn í Evrópusambandið. Sömu heimilistæki duga skemur heldur en þau gerðu í gamla daga, ég held að fólk muni eftir því, og það er að stóru leyti út af ofregluvæðingu. Svo var bann við öflugum eiturefnum þannig að ákveðnar tegundir skordýra hafa náð mikilli fótfestu. Bann við of góðum blöndunartækjum út af orku- og sparnaðaraðgerðum. Af sömu ástæðu er bann við ákveðnum perum. Hver hefur ekki fundið fyrir því veseni að skipta um perur heima hjá sér af því að nú er bara LED leyfilegt. Þurfti að banna halógen? Mátti ekki frekar ýta undir LED-innleiðingu í staðinn fyrir þessi endalausu boð og bönn og að heimili þyrftu að eyða mörgum milljónum í að skipta öllu út hjá sér af því að þau fá ekki perurnar nema þú sért að kaupa þær í einhverjum búðum sem smygla þeim frá Rússlandi. Þetta er það sem við erum að ganga inn í og ef hv. þingmenn meiri hlutans (Gripið fram í.) eru ósammála þessu eða vilja kannski benda okkur á af hverju þeir vilja fara inn í Evrópusambandið þá held ég að það væri mjög gott.
Þetta er svo löng ræða að ég — já, svo er talað um að hafa sæti við borðið. Þá verður manni nú alltaf hugsað til þess, sæti við borðið, að þetta sé eins og hjón við matarborðið. Svo fær barnið sæti við borðið. Hefur það þriðjungsvald? Nei, þú getur alveg hlustað. Barnið vill kannski pítsu öll kvöld, það vill alls konar. En á endanum eru það bara stóru aðilarnir sem ráða; inn um eitt og út um hitt. (Forseti hringir.)
Frú forseti. Ég segi nei við þessu, ekki af því að ég vil ekki kíkja í einhvern pakka heldur veit ég af blekkingunni. Ég veit að þetta snýst um það, (Forseti hringir.) eins og ég sagði hér fyrr, hvort við viljum ganga inn í Evrópusambandið eða ekki og hefja þá aðlögun.