157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:50]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Hér er í fyrsta lagi sagt að ég tali í báða hópa og ég heyri ekki betur en að hv. þingmaður telji það bagalegt. Ég er ósammála því. Mér finnst ekki óeðlilegt að þessi umræða um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi sér stað, annars vegar vegna þess að það var skýrt frá því að stjórnarmeirihlutinn varð til — að þetta væri verkefni sem ríkisstjórnin ætlaði sér í. Þar af leiðandi vitum við hvernig það fer; við vitum að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla mun eiga sér stað með einum eða öðrum hætti. Hins vegar nefndi hv. þingmaður að hér væru allir sammála um að vera málefnalegir og gera þetta vel og með sóma. Ég ætla bara að leyfa mér að vera ósammála því. Mér finnst sumt sem hér hefur komið fram í þessum ræðustól ekki sagt með nægilega miklum sóma. Mér hefur ekki þótt allt sem hér hefur komið fram mjög málefnalegt. Mér finnst ekki rétt að saka fólk um stórkostlegar blekkingar. Það er mikið gert úr blekkingaleik, svo dæmi sé tekið. Það sem ég er bara að benda á er að þetta mál er stærra en flokkapólitík. Þetta mál snýst um Ísland og ekkert annað en það. Við vitum að það er meiri hluti fyrir þessari þingsályktunartillögu en við vitum hins vegar líka að það er ekki meiri hluti fyrir aðild að Evrópusambandinu á þessu þingi. Hvað varðar spurningu hv. þingmanns um hvernig eigi að vinna úr niðurstöðunni: Ég hef heyrt mjög skýrt frá ríkisstjórninni að það er meiri hlutinn sem ræður. (Forseti hringir.) Ég er hins vegar persónulega þeirrar skoðunar að það þyrfti sterkar undirstöður fyrir þessa risastóru ákvörðun og allt sem í framhaldinu kemur.