157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:25]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Nei, alls ekki. Íslenska krónan hefur nefnilega staðið gríðarlega vel með íslensku efnahagslífi og byggt upp þau lífskjör sem við búum við, byggt upp þennan ótrúlega kaupmátt. Það kom fram í minni ræðu áðan. Er ekki betra að vera með íslenska krónu heldur en hátt atvinnuleysi? Eigum við að hafa spænskt atvinnuleysi fyrir fólk yngra en þrítugt, 25–30% atvinnuleysi? Hvernig heldurðu að það væri fyrir íslenskt samfélag ef hér væri 20–30% atvinnuleysi hjá ungu fólki? Það er ekkert óeðlilegt að þjóðir hafi gjaldmiðla sem spila með efnahagslífi þeirra. Okkar efnahagslíf er mjög langt frá því sem er evrópskt eða því sem Evrópusambandið hefur. Við erum með allt aðrar atvinnugreinar, allt aðra uppbyggingu á okkar efnahagslífi, þannig að það er mikil einföldun að halda að evra leysi allt fyrir íslenskt atvinnulíf. Hluti af því sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt, fyrst þingsályktunartillagan um þetta mál er mjög efnislega rýr, er að það komi efnislega öflugt og gott nefndarálit frá hv. utanríkismálanefnd um þetta mál þannig að þjóðin geti náð betur utan um málið. Ég endurtek líka að það er mjög óeðlilegt að atkvæðagreiðslan fari fram á þessum tíma. Það væri miklu eðlilegra að hún væri um mánaðamótin september/október þegar þingið er búið að starfa um tíma og atvinnulífið og allir eru komnir í sinn rytma.

Lífeyrissjóðirnir, ég kem kannski betur inn á þá í seinni ræðu. Við Íslendingar erum ásamt Dönum og Hollendingum með öflugustu lífeyriskerfi sem þekkjast. Hér hefur stöðugt verið að hækka á undanförnum 10–15 árum hlutinn af lífeyriskerfinu, sem er upp á 8.500 milljarða í dag, ætli það séu ekki um 60% núna sem á að fjárfesta erlendis í því kerfi. Það er verið að vinna með þessu og það er nákvæmlega þetta, þessi mikla sveifluminnkun sem hefur orðið á flöktinu á krónunni ef við tökum síðustu 10, 12 ár, sem kemur m.a. með ferðaþjónustunni og skapar allt annan stöðugleika sem við erum að upplifa. (Forseti hringir.) Ég myndi ekki fara að tala niður íslenska lífeyrissjóðakerfið. Ég held að það sé raunverulega okkar helsta til að verja. (Forseti hringir.) Íslenska krónan hefur líka staðið með því í stóru myndinni vegna þess að hún stendur með íslensku atvinnulífi. En við getum farið enn þá dýpra í lífeyriskerfið á eftir.

(Forseti (BergÓ): Forseti minnir þingmenn á að það eru tímatakmörk í andsvörum.)