157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:33]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér þingsályktunartillögu um framhald viðræðna Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Ég vil byrja á að segja, líkt og ég hef sagt áður í þessum ræðustól, að ég styð það heils hugar að þjóðin fái að kjósa í þessu máli alveg eins og þjóðin á að fá að kjósa í öðrum stórum málum. Það er hins vegar grundvallaratriði að við vinnum heimavinnuna af myndugleik. Þjóðin á skilið að mínu mati að ríkisstjórnin leggi fram sína sjálfstæðu greiningu og rökstuðning um hverju skal ná fram. Við vitum öll að umræða mun fara fram í háskólasamfélaginu, hún mun fara fram í fjölmiðlum, hjá hagsmunasamtökum, en það breytir því ekki að það er ríkisstjórnin sem ber þessa pólitísku ábyrgð. Hún er kosin til að leiða þjóðina og hún þarf að standa undir þessari pólitísku ábyrgð með því að vera skýr í því hvert við erum að stefna, því að í mínum huga er þetta mál miklu stærra en hagsmunir einstakra flokka. Þetta mál er miklu stærra en framtíð núverandi ríkisstjórnar. Þetta mál er miklu stærra en hagsmunir okkar Íslendinga sem hafa í dag kosningarrétt. Þetta er einfaldlega framtíðarhagsmunamál fyrir komandi kynslóðir og við skulum gera kröfu á það gagnvart ríkisstjórninni, gagnvart samtalinu sem við eigum hér í þessum þingsal, að farið sé með málið sem slíkt. Mér finnst að það þurfi að vera skýrar sett fram hverju ríkisstjórnin vill ná fram, og þá á ég við þessi grundvallarsamningsmarkmið, þessar rauðu línur og hvernig ferlið verður, því að það er fyrst þá sem þjóðin getur metið hvort hún sé sammála grunnforsendum og markmiðum sem eru lögð fram og þá getur þingið rýnt innihaldið og metið raunsæið sömuleiðis.

Það er rétt, virðulegi forseti, að heimurinn hefur breyst á marga vegu. Evrópusambandið hefur líka breyst, ef við horfum áratug aftur í tímann. Og staða Íslands hefur sannarlega breyst mikið ef við horfum t.d. á tímann frá efnahagshruninu. Það sýnir og sannar fyrir okkur að við þurfum ekki bara að taka punktstöðu núna, heldur að horfa fram í tímann og vera raunsæ þegar við erum að horfa langt fram í tímann varðandi hvernig sérlausnir munu halda, vera raunsæ í því hverju hægt er að ná fram með slíku, því að það skiptir máli að við tölum af ábyrgð í þeim málum.

Í þessu samhengi vil ég segja að ég er alþjóðasinni. Ísland þarf á umheiminum að halda til að blómstra. Við sjáum það í viðskiptum, við sjáum það í menntun, við sjáum það í alþjóðasamvinnu. En ég er líka djúpur fullveldissinni og þar eru það auðlindirnar okkar sem skipta miklu máli. Ég held að kynslóðirnar sem vaxa nú úr grasi taki kannski sem sjálfsögðum hlut þeirri baráttu sem var háð fyrir fullveldi okkar, fyrir sjálfstæði, fyrir yfirráðum yfir auðlindum. Þetta er eitthvað sem við verðum að passa upp á.

Það dylst engum að í samhengi við Evrópu þá hefur okkur vegnað vel í gegnum EES-samninginn á marga vegu. Við höfum eflt viðskipti en við höfum líka náð að halda utan um hagsmuni sem snúa að yfirráðum yfir sjávarauðlindinni. En við höfum líka, virðulegur forseti, glutrað niður sérstöðu Íslands á ýmsa vegu með innleiðingu Evrópulöggjafar og í sumum tilfellum getum við hreinlega aðeins kennt okkur sjálfum um. Hér á ég við í orkumálum þar sem enginn talaði t.d. um erlent eignarhald sem birtist okkur núna í samhengi við orkupakkana. Hér á ég t.d. líka við í landamæramálum þar sem við eigum náttúrleg landamæri en tókst að innleiða regluverk sem hannað var fyrir meginlandið og deilum hér í dag mjög um innflutning á fólki og innflytjendamál. Hér á ég líka við jarðamál þar sem við opnuðum fyrir jarðasölu, seljum hér jarðir til erlendra aðila og þar með heitt og kalt vatn og jarðefni, eitthvað sem er dæmi um það þar sem okkur tókst ekki að innleiða Evrópulöggjöf með fullnægjandi hætti í innlenda löggjöf, sem hentaði ekki íslenskri sérstöðu. Hvað kennir þessi reynsla okkur? Jú, hún kennir okkur að þegar við erum að taka ákvarðanir og ræða slík hagsmunamál eins og við gerum hér í dag þá þurfum við miklu, miklu, miklu dýpri greiningu á framtíðaráhrifum. Við þurfum skýrara áhættumat í samhengi við íslenskan veruleika og við þurfum raunverulega varnagla.

Ríkisstjórnin hefur vísað til margra mála sem skipta (Forseti hringir.) íslenskt samfélag máli, t.d. varðandi aðgang að ákvarðanatöku, varðandi vaxtamál, varðandi skjól í alþjóðlegu ölduróti. (Forseti hringir.) Ég veit að ég er búin með tímann en ég segi: Þetta eru allt mikilvægar spurningar. Við þurfum að þora að ræða þær. (Forseti hringir.) Við þurfum að gera það án þess að skiptast í fylkingar og við þurfum að taka umræðuna á dýptina. Það er það sem þjóðin á skilið.