þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir þessa ræðu. Ég held að það sé nokkurn veginn þannig að ég hafi ekki náð að vera sammála einu einasta orði sem í henni var. En það er nú bara svona eins og málin æxlast stundum hér í þessum ágæta sal okkar að það eru skiptar skoðanir á þessu. En mér finnst hlutunum stillt upp með svolítið mikilli nauðhyggju oft þegar við erum að ræða þessi mál. Það er einhvern veginn talað eins og það sé ekki hægt að takast á við fleiri en eitt viðfangsefni í íslensku samfélagi á hverjum tíma. Við höfum margoft, Íslendingar, verið í þeirri stöðu að við erum að vinna hér að alls kyns málum innan lands og á sama tíma staðið í stórræðum á alþjóðavettvangi. Ég get ekki séð að það sé einhvern veginn einhver sérstakur gæðastimpill á okkur sem þjóð að stilla málum með þeim hætti upp að ef við ætlum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta tiltekna álitaefni sem hér blasir við okkur þá þurfi einhvern veginn allt annað að sópast út af borðinu á meðan og ekki sé hægt að ræða önnur mál. Það er einfaldlega bara okkar í okkar höndum að gera það samhliða.
Hv. þingmaður fór mikinn í því að tala um að það ríkti eitthvert vantraust í garð stjórnarflokkanna frá þjóðinni. Þessari spurningu um Evrópusambandið og mögulega aðild þar að eða hvort það eigi að hafa þjóðaratkvæði áður en farið er í aðildarviðræður eða hvort það eigi að fara í þjóðaratkvæði þegar aðildarviðræður eru hafnar til að halda þeim áfram eins og staðan er núna hefur einhvern veginn verið algerlega ósvarað í íslensku samfélagi. Þess vegna langar mig bara að spyrja, vegna þess að ég skil ekki stundum málflutning Miðflokksins í þessu. Það hefur komið skýrt fram hjá Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum í þessari umræðu að þeir treysti því að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram og að niðurstaðan úr henni verði bara efnd. Mig langar að fá að vita það frá hv. þingmönnum Miðflokksins: Er Miðflokkurinn beinlínis á móti því? Ætlar Miðflokkurinn að leggjast gegn því að þjóðin fái að segja sitt um það hvort það eigi að halda viðræðum áfram eða ekki?