157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:49]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir þetta. Já, við erum auðvitað ósammála um margt í þessu eins og gengur. Fyrir mér er þetta ekki eitthvað ofboðslega flókin spurning. Ég held að Íslendingar viti alveg ágætlega um hvað Evrópusambandið snýst og hvað það innifelur. Um þetta hefur verið mikil umræða í samfélaginu núna um áratugaskeið. Ég held að það sem snýr að markmiðum okkar í samningaviðræðum sé alveg ljóst; við ætlum að halda forræði á okkar auðlindum, algjörlega skýrt og klárt, og það hefur meira að segja komið fram hjá utanríkisráðherra að það sé kannski heppilegra að byrja á þeim köflum sem ekki var byrjað á síðast og eru kannski mesti ásteytingarsteinninn. Ég held að við eigum ekki að flækja okkur í einhverja umræðu um það að tímasetningin sé röng eða þá að það liggi ekki nægilega miklar upplýsingar fyrir um þetta einfalda atriði, hvort halda eigi viðræðunum áfram. Mér finnst það sem hv. þingmaður er að kalla eftir séu meira spurningar sem liggja mögulega fyrir ef þjóðin segir já í þessari fyrri atkvæðagreiðslu og það er þá eitthvað sem skýrist með samningaviðræðum. Ég er nefnilega hjartanlega ósammála hv. þingmanni um það, eins og heyrst hefur hér og frá hans flokki í þessari umræðu, að það sé nánast ekkert að semja um. Það eru fjölmörg ríki sem hafa farið í gegnum þetta samningaferli. Það kom skýrt fram hjá stækkunarstjóra Evrópusambandsins á dögunum að hver og einn aðildarsamningur er ólíkur öðrum. Þeir eru ekki eins. Þjóðir eru mjög mislengi að semja sig í gegnum þetta. Þetta getur verið frá örfáum árum og jafnvel yfir í meira en áratug þannig að þetta er ekki svona rosalega einsleitt eins og menn halda. Ég ætla bara að vona að við getum sæst á það, hvort sem við erum í Miðflokki eða Viðreisn, að það sé bara þjóðinni til heilla og okkur öllum til góðs að íslenska þjóðin segi okkur bara hreint og klárt hvort hún vilji fara í þessar viðræður: Vill hún halda þeim áfram eða ekki? Það þarf ekkert að vera að drepa málum á dreif með öllu þessu sem hv. þingmaður var að nefna hér áðan. Þjóðin er ágætlega upplýst um það um hvað málið snýst.