157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:52]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Þarna kom nú punktur sem var áhugaverður. Hv. þingmaður nefnir að það taki mislangan tíma fyrir þjóðir að semja og við þurfum að sjá hverju við náum fram og það gæti tekið tíma. Þessi tími sem það tekur þjóðir að semja við Evrópusambandið fer einungis í það að bíða eftir því að þjóðirnar geti uppfyllt þær kröfur sem Evrópusambandið setur. Þeim er hugsanlega gefin einhver aðlögun í ákveðnum málaflokkum og það er sá tími sem þessar viðræður fara í. Það er ekkert annað. Sumar þjóðir eru árum saman á einhverjum biðlista vegna þess að þær uppfylla ekki kröfur sambandsins. Það er raunverulega það eina sem er að gerast. Ef Íslendingar færu í þessar viðræður þá fengjum við hugsanlega einhverja aðlögun og það er þessi tími þar sem við þyrftum hugsanlega að bíða. Við myndum kannski fá einhverja fresti varðandi sjávarútveg, landbúnað, orku o.s.frv., hugsanlega, á meðan við værum að aðlaga regluverkið og þá myndu viðræðurnar tefjast á meðan. Það er raunverulega það sem er að gerast. Það er eitt líka, herra forseti, sem ég hef kannski ekki sagt nægjanlega skýrt, þ.e. að þegar við hefjum þessar viðræður þá hefst aðlögun. Þá staðreynd hafa stjórnarþingmenn ekki getað játað hér. Þeir hafa heykst við að koma hér upp og játa það að það hefst aðlögun um leið og viðræðurnar hefjast. Strax. Þá bíður mótaðilinn eftir því að Íslendingar hefji aðlögun og spyr: Eru þeir byrjaðir? Hversu langt eru þeir komnir? Hvernig gengur? Það er raunverulega það sem er að gerast í þessum samningaviðræðum, eðlilega. Þetta er þúsund sinnum fjölmennara samband heldur en við Íslendingar, þúsund sinnum fjölmennara. Heldur hv. þingmaður að þeir séu að fara að aðlaga sig að okkur?