157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:59]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur að það er afskaplega bagalegt hvernig ríkisstjórnin hefur kosið að nálgast þetta mál og leitað allra leiða til að umræða um innihald þess verði sem minnst. Þá erum við auðvitað sett í þá stöðu að nota þann takmarkaða tíma sem gefst í fyrri umræðu um þingsályktunartillögu til að benda á það að ekkert liggur fyrir um hvernig ríkisstjórnin ætlar að fara með það umboð sem hún sækist eftir að fá í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún hefur ekki treyst sér til þess að gefa þau upp, ekki treyst þjóðinni fyrir þeim upplýsingum. En fyrir vikið, af því að við höfum þurft að draga þetta fram, hefur takmarkaður tími gefist til að ræða stöðu mála í Evrópusambandinu, því allt snýst þetta auðvitað um það af hálfu meiri hlutans hér að koma Íslandi inn í Evrópusambandið með blekkingum, með góðu eða illu. Eftir því sem umræðunni vindur fram þá munum við þurfa að ræða meira um stöðu Evrópusambandsins. Þess vegna vildi ég taka örlítið forskot á sæluna og spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af því ef ríkisstjórninni tekst ætlunarverk sitt og við drögumst inn í þær aðstæður sem þar eru, þar sem er í rauninni meira og minna gegnumgangandi, sérstaklega í Vestur-Evrópulöndunum, gjaldþrota velferðarkerfi og lífeyriskerfi. Ísland býr nú betur en flest öll lönd hvað varðar stöðu lífeyriskerfisins. Reyndar hefur Holland leitast við að byggja upp sterkt lífeyriskerfi líka en liggur undir ámæli eða er að verjast áformum og áhuga samrunasinna á að að búa til eitt velferðar- og lífeyriskerfi í Evrópu. Svo ég afmarki spurningu mína: Hefur hv. þingmaður áhyggjur af þessum þætti, að Ísland, ríki sem stendur vel með sterkt lífeyriskerfi, dragist inn í gjaldþrotakerfi Evrópusambandsins?