þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég kannast ekki við neinn blekkingaleik nema af hálfu stjórnarliða svo að ég svari hv. þingmanni og þakki honum fyrir spurningu sem til mín er beint. Það hefur verið alveg skýrt á heimasíðu Evrópusambandsins að við höfum ekki verið þar umsóknarríki. Þess vegna vakti það furðu allra landsmanna, held ég, þegar Ursula von der Leyen flaug allt í einu hingað í einhverja viðhafnarheimsókn í júlí á síðasta ári gagngert til að tilkynna þjóðinni að umsóknin væri virk og að hún myndi taka fagnandi á móti okkur. Það er algerlega fyrir ofan minn skilning af hverju stjórnarliðar vilja hlaupa hér í eitthvert lélegra efnahagsumhverfi heldur en við erum í nú þegar. Ég bara skil þetta ekki. Það er alveg hægt að grafa upp einhver gömul ummæli frá mér sem eru orðin 13 ára gömul, (SGuðm: 12 ára )eða 12 ára. Það er alveg hægt, en þau voru líka látin falla í allt öðru andrými. Þá hafði orðið efnahagslegt hrun á Íslandi. Við erum löngu búin að ná okkur af því. Við Íslendingar erum búin að byggja okkur vel upp aftur. Við höfum staðið okkur vel og við megum vera stolt af því. Þá vorum við í allt annarri stöðu og gjörólíkri þeirri sem við erum í núna. Og ef hv. þingmaður kallar það einhvern blekkingaleik að tala um að stöðva eða slíta þá ætla ég bara aftur að vísa í heimasíðu Evrópusambandsins sem segir að við höfum ekki verið með virka umsókn.
Mig langar líka að fá að velta því upp — af því að hér situr hæstv. utanríkisráðherra í salnum og ég ætla að fá að þakka henni fyrir að hafa verið hér og hlustað á umræðurnar í dag. Það er vel. En hún hefur ítrekað sagt að hún muni aldrei skrifa undir samning sem felur í sér afsal á auðlindum okkar, svo sem fiskveiðiauðlindinni. Gott og vel, það er stór yfirlýsing sem skiptir íslenska þjóð miklu máli. En þá verður ráðherrann líka að geta svarað næstu spurningu af sama skýrleika. Á hvaða grundvelli segir ráðherrann þetta? Á hvaða grundvelli segir ráðherra að hún muni aldrei skrifa undir afsal eða framsal á fiskveiðiauðlindinni þegar við vitum að það hefur ekkert ríki fengið undanþágu þar um?