þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Framsóknarflokkurinn fagnar allri lýðræðislegri umræðu og hefur ávallt treyst þjóðinni og gerir svo í þessu máli. Framsóknarflokkurinn telur hins vegar að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan ESB og mun tala fyrir því á komandi mánuðum enda höfum við séð þann árangur sem náðst hefur hér á landi á undanförnum árum og áratugum með skynsamlegri nýtingu auðlinda okkar sem hefur leitt okkur á þann stað að lífskjör á Íslandi eru ein þau bestu í heimi. Við megum aldrei gefa frá okkur full yfirráð yfir auðlindum þjóðarinnar og slíkt er feigðarför. Það að ætla að selja landið rándýrt er eitthvað sem okkur í Framsókn hugnast illa, virðulegur forseti, eða alls ekki. Það er mikilvægt að þjóðin sé vel upplýst í aðdraganda kosninga, að bæði sjónarmið fái að koma fram og sömuleiðis réttar upplýsingar. Þau fyrirheit sem gefin voru í aðdraganda síðustu kosninga, um að stóra verkefnið hér væri að ná stöðugleika í efnahagsmálum, ná niður verðbólgu og vöxtum áður en farið yrði í aðildarviðræður eða kosningar um slíkt, hafa nú verið brotin. Verðbólga er á uppleið, vextir fastir eða mögulega að hækka og atvinnuleysi í hæstu hæðum og verðbólguvæntingar hærri en gert var ráð fyrir. Að koma með þetta mál inn nú, virðulegur forseti, áður en stöðugleika hefur verið náð, er röng forgangsröðun eða slæm forgangsröðun og allt tal um að sameina þjóð í stað þess að kljúfa hana er fallið um sjálft sig. Framsóknarflokkurinn mun ekki leggjast gegn þjóðaratkvæðagreiðslu en mun hafna inngöngu í sambandið enda mun slíkt ekki þjóna íslenskum hagsmunum og við munum skoða að koma með breytingartillögur inn í vinnu nefndarinnar á komandi vikum.
Að þessu sögðu vil ég óska nefndinni velfarnaðar í störfum sínum þegar kemur að þessu risastóra máli sem verður sennilega, virðulegur forseti, stærsta mál þessa kjörtímabils.