þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvar. Það er alveg rétt að það mun taka tíma að skipta um gjaldmiðil ef það verður niðurstaðan og það verður vilji þjóðarinnar og þingsins að fara í þá vegferð. Og það er alveg rétt sem hv. þingmaður kom hér inn á varðandi krónuna í kjölfar efnahagshrunsins, hún reyndist okkur afskaplega vel. Við höfum náð nokkrum góðum tímabilum þar sem við höfum verið með mjög stöðugan gjaldmiðil. Og talandi um þá grein sem hv. þingmaður vitnaði í hér áðan þá var þar þetta sett fram á mjög skýran hátt.
Það sem ég kannski vil við þetta bæta, svona í lokin á þessari umræðu, talandi um upplýsingar og hvaða upplýsingar við erum að fá og hvaða upplýsingar við erum að senda frá okkur til almennings sem er mögulega að fara að taka þessa ákvörðun núna í haust, þá mun innganga í Evrópusambandið — eftir aðildarviðræður og ef það fer nú svo að ríkisstjórnin nær sínum markmiðum að við göngum inn í Evrópusambandið og tökum upp evru — á engan hátt leysa það ástand sem er uppi í dag í íslensku efnahagslífi. Það mun ekki lækka íbúðalán fólks daginn eftir eða í vikunni eftir. Það er verkefni sem við þurfum að vinna hér í þessum sal. Þess vegna var ég að tala um það hér áðan, virðulegur forseti, í minni ræðu að mér finnst forgangsröðunin einkennileg. Ég hefði gert þetta með öðrum hætti. Ég hefði farið fyrst í að reyna að ná stjórn á efnahagsmálum þjóðarinnar, nákvæmlega eins og hæstv. forsætisráðherra talaði um fyrir kosningar. Ef það hefði verið vilji eftir það til að fara í þetta mál (Forseti hringir.) þá hefði hún svo sem mátt gera það mín vegna. En forgangsröðunin, virðulegur forseti, er röng.