þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég kem hérna upp öðru sinni í þessari mikilvægu umræðu. Það er vissulega margt að segja um Evrópusambandið og ekkert nema eðlilegt að það séu skiptar skoðanir á því stóra — ég ætlaði að segja fyrirbæri, ég kunni svo ekki við það en svo finn ég ekkert annað orð — ríkjasambandi sem hefur áhrif á okkar líf nú þegar og er hér til umræðu að hafi enn meiri áhrif. Ég ætla þó að sleppa því að þessu sinni, enda gæfist mér heldur ekki tími til þess með góðu móti að ræða efnislega um Evrópusambandið. En ég vil hnykkja á nokkrum atriðum sem mér finnst skipta máli varðandi þá þingsályktunartillögu sem við erum að klára fyrri umræðu um og ég tel skipta máli varðandi þá þjóðaratkvæðagreiðslu sem að líkindum bíður þjóðarinnar, ef hún tekur engum efnisbreytingum, í lok sumars. Mér finnst nefnilega einlægt, frú forseti, með miklum ólíkindum að í þessu risastóra hagsmunamáli fyrir þjóðina, risastóra pólitíska máli fyrir ríkisstjórnina, er merkilega lítið gert úr því í efnisatriðum málsins. Það eru vissulega notuð falleg orð og við höfum heyrt hér nokkur af hálfu þessarar ríkisstjórnar og það er gott að vilja treysta þjóðinni og það eigum við öll sameiginlegt. En að mínu viti og í mínum huga er ekki það sama að treysta þjóðinni og að ætla síðan ekki að veita þjóðinni þær lágmarksupplýsingar sem er hennar réttur að fá til þess að geta verið beðin um að svara þeirri spurningu sem ríkisstjórnin vill leggja fyrir hana.
Þá ætla ég að leyfa mér að segja að ég er ekki einu sinni að tala um kosti og galla ESB þó að ég taki um margt undir með þeim sem hafa sagt að það sé erfitt að skilja á milli þessara tveggja spurninga. Ég er í grunninn sammála því að það er smá leikaraskapur að ætla að hafa þennan millikafla um þessa spurningu gagnvart þjóðinni um hvort við höldum áfram; spurningin eigi heldur að vera hvort íslensk þjóð vilji fara í Evrópusambandið og athuga hvort við getum aðlagast Evrópusambandinu. En látum það liggja á milli hluta. Stöldrum bara við þennan millikafla fyrst hann er orðin staðreynd málsins og er búinn að liggja fyrir allt frá því að stjórnarsáttmálinn var settur. Þessi millikafli er einfaldlega ekki nógu skýr. Það er ekki sanngjarnt gagnvart þjóðinni að eiga að mæta að kjörkössum síðla sumars þegar já eða nei spurningin felur ekkert annað í sér nema svona frasakennd orð um að treysta þjóðinni og fá meiri upplýsingar. Hver vill ekki fá meiri upplýsingar? Það hljómar vissulega vel. En ætlar ríkisstjórnin að veita þjóðinni meiri upplýsingar í aðdraganda þessarar kosningar? Hvað með þá lykilspurningu hvort komi til greina af hálfu ríkisstjórnarinnar að aðlaga ákveðna þætti í íslenskri löggjöf á meðan á þessu samtali stendur? Hví má ekki fá skýrt svar við því? Það er lykilspurning. Ef það er satt, sem er haldið hér fram, að ef það kemur ekki nógu góður samningur út úr þessu samtali í Brussel þá geti íslensk þjóð hafnað honum — ég held að forsætisráðherra hafi orðað það mjög fallega í dag, að íslensk þjóð muni eiga lokaorðið og það er vel — hvað með þá spurningu sem er ítrekað verið að spyrja, hvort það komi til greina að aðlaga eitthvað af okkar reglum í því ferli? Þetta er lykilspurning. Fyrir utan samningsmarkmiðin. Hvað ætla samningamenn ríkisstjórnarinnar að segja við þetta samningaborð? Hvar liggja lykillínur? Hvar eru sársaukamörkin, hver er skóggangssökin? Hvar munum við standa upp og segja: Takk fyrir en ég held að þetta henti okkur ekki, ef einhvers staðar? Þetta verður að liggja fyrir, frú forseti, fyrir utan kostnaðinn og allt hitt sem væri eðlilegt og lögboðið að fjalla um en er ekki gert.
Ég vona, frú forseti, að hv. utanríkismálanefnd auðnist að svara þessum spurningum (Forseti hringir.) því að annars er að mínu viti holur hljómur í því þegar ríkisstjórnin segist treysta þjóðinni.