157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:48]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Ég held að það segi sig almennt í lífinu, bæði hér innan húss og annars staðar, að ef mál er lagt á borð sem spyr fleiri spurninga en það svarar þá tekur lengri tíma að vinna úr því. Ég er einlægt hissa á því að það séu skildar eftir svona margar spurningar í þessu máli. Ég hefði þvert á móti haldið að ríkisstjórninni væri kappsmál að ganga fram fyrir málið, stíga fram fyrir það og sýna styrk sinn og fá traust frá þjóðinni gagnvart því að hér væri allt á hreinu, ef svo mætti segja. Þegar við bætum því við hvernig þessi ríkisstjórn hefur unnið að einstaka málum undanfarið ár síðan hún tók við völdum þá höfum við séð að það átti kannski að stytta aðeins leiðina, að vinna ekki alla vinnuna, eins og við höfum kannski vanist, og vinna bæði frumvörp með þeim hætti sem annars vegar er lögboðið að gera og hins vegar samkvæmt hefðum og venjum til að bæta lagasetningu. Það hafa verið búnir til ákveðnir ferlar og stytt yfir strik þar sem og í nefndarvinnunni til þess að flýta fyrir. Við höfum margoft séð að þá koma tafirnar annars staðar fram. Það tekur lengri tíma þegar þingmennirnir sjálfir eru að reyna að grafast fyrir um einhver svör eða að reyna að knýja fram einhvers konar lágmarks þinglega meðferð ef ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn vilja ekki stuðla að henni sjálf. Ég er í rauninni að segja að mér finnst þessi byrjun ekki lofa góðu en ég vona einlægt að utanríkismálanefnd muni auðnast að vinna þetta vel saman.