þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hérna í seinna andsvari langar mig til að spyrja hv. þingmann út í atriði sem þingmaðurinn kom inn á í ræðu sinni er varðar það sem gerist eftir að niðurstaða fæst í ágúst, verði sú niðurstaða ríkisstjórninni, stjórnarflokkunum, jafnvel Flokki fólksins, hagfelld, að það verði sagt já, það sem gerist frá þeim tímapunkti þar til samningur verður lagður fyrir þjóðina í seinni atkvæðagreiðslunni, eins og stjórnarflokkarnir kalla það. Ef hv. þingmaður myndi kannski aðeins fara yfir hvað það er sem bíður, hvort staðan verði óbreytt eða hvort aðildarumsóknarríki sé uppálagt að gera eitthvað annað en að fá sér kaffibolla og kleinur í Brussel á milli þessara tveggja tímapunkta.