Störf þingsins.
Frú forseti. Í gær lauk fyrri umræðu um þingsályktunartillögu um að veita þjóðinni tækifæri til að ákveða hvort halda skuli áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Umræðan átti ágæta upplýsandi spretti en á löngum köflum snerist hún ekki um þjóðaratkvæðagreiðsluna heldur eitthvað allt annað. Hér hefur verið haldið fram að engar undanþágur sé að fá, það sé ekkert um að semja og að tímasetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar sé kolómöguleg. Svo virðist skipta máli hvort ráðherrar mæti á fund á fimmtudegi eða mánudegi. Það sorglegasta er þegar stjórnarandstaðan sakar ráðamenn um að plotta í útlöndum, halda eftir upplýsingum og vera í blekkingarleik. Það er undir svona málflutningi sem ég verð sannfærðari um mikilvægi þess að treysta þjóðinni og vera óhrædd við að leita leiðsagnar hennar í þessu mikilvæga máli. Hér hafa þingmenn einfaldlega spólað yfir sig. Mér verður hugsað til sögunnar af manninum með tjakkinn. Sú saga fjallar um bílstjóra sem verður fyrir því óláni að dekk á bíl hans springur um miðja nótt. Bílstjórinn uppgötvar að enginn tjakkur er í bílnum en langt í burtu sér hann ljós á bóndabæ. Hann ákveður að ganga af stað og freista þess að fá lánaðan tjakk. Á leiðinni fer hann að velta fyrir sér hvort bóndinn á bænum eigi nothæfan tjakk og, ef svo ólíklega vill til, hvort hann vilji lána honum hann. Það er slagviðri, maðurinn illa búinn og smám saman tekst honum að sannfæra sjálfan sig um að bóndinn sé bölvaður nirfill og muni næsta örugglega taka illa á móti sér. Þegar bílstjórinn kemur loksins á bóndabæinn, blautur og kaldur, er hann orðinn svo æstur yfir eigin hugsunum að hann bankar í fússi á útidyrnar og hreytir framan í grandalausan manninn sem opnar: „Þú mátt eiga þinn helvítis tjakk sjálfur.“ Svo þrammar hann til baka niður heimreiðina án þess að frekari samskipti eigi sér stað.
Virðulegur forseti. Er ekki farsælla fyrir þjóðina að sjá hvaða tækifæri aðildarsamningur getur haft í för með sér áður en við hendum helvítis tjakknum í þjóðina?