157. löggjafarþing — 83. fundur,  17. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það býr fólk í Reykjavík og það sem við erum að fjalla um hér tengist hagsmunum þeirra og allra landsmanna. Hér kemur hv. þingmaður upp á undan mér og fer yfir það að það er stutt í sveitarstjórnarkosningar. Það er rétt en hvenær ætlum við að ræða hluti sem tengjast að stærstum hluta Reykjavík en líka öðrum kjördæmum með beinum hætti, sem kosið verður um og hefur ekki verið fjallað um að neinu ráði hér á Alþingi Íslendinga? Til hvers er ég að vísa hér? Ég er að vísa til samgangna. Ég er að vísa til þess að í þeim kynningum sem við fáum fyrir hv. fjárlaganefnd á samgöngusáttmálanum er t.d. gert ráð fyrir því að veggjöld verði 143 milljarðar, virðulegi forseti, og ég hef lagt fram fyrirspurn um það hvenær Alþingi Íslendinga eigi að ræða þessa hluti og taka ákvörðun um þessa hluti. Eða er það einhver annar sem á að gera það? Þetta eru 143 milljarðar og þegar við förum í samgöngusáttmálann erum við að tala um hundruð milljarða, ekki hundruð milljóna, heldur milljarða. Er það svo, virðulegi forseti, að við ætlum ekki að ræða þetta neitt á þinginu? Eru einhverjir aðrir en þjóðkjörnir fulltrúar sem taka ákvarðanir um þessi mál? Það er líka gert ráð fyrir því að það eigi að fjármagna þetta mikið, t.d. með því að fara í gerræðislegar hugmyndir um uppbyggingu í Keldnalandi sem munu hafa gríðarlega neikvæðar afleiðingar á alla þá sem þar búa og í nágrenninu og reyndar eru þetta, held ég, dýrustu skipulagsmistök í sögu þjóðarinnar. Menn geta haft ýmsar skoðanir á því. (Forseti hringir.) Aðalatriðið er þetta, virðulegi forseti: Ætlum við ekki að ræða þetta? Er einhverra annarra að taka ákvörðun um þetta heldur en Alþingis Íslendinga? Það er stutt í sveitarstjórnarkosningar og Reykvíkingar (Forseti hringir.) og landsmenn allir eiga rétt á því að við ræðum þetta og þeir fái að vita hvaða áætlanir eru í gangi.