hækkun stýrivaxta.
Virðulegur forseti. Þetta voru vond tíðindi í morgun þótt þau hafi því miður ekki komið á óvart. Það sem er verra er að engin teikn eru á lofti af hálfu hæstv. ríkisstjórnar um að breyta um kúrs í þeim anga hagstjórnar sem heyrir undir hana. Þvert á móti virðist eiga að halda hér áfram eins og ekkert hafi í skorist og eins og allt sé hér í blóma þegar allt bendir í þveröfuga átt. Ég vil því beina því til hæstv. forseta að hún hljóti að spyrja hæstv. ríkisstjórn hvort hún vilji ekki endurskoða það, alla vega hinkra með það, að setja hér til atkvæðagreiðslu risastórt mál sem á að tengja almannatryggingabætur við launavísitölu, mál sem mun setja ríkisútgjöld á sjálfstýringu, ógna sjálfbærni ríkisfjármála og hvað? Jú, auka verðbólguþrýsting. Það er með ólíkindum ef ekki á að staldra við, frú forseti, (Forseti hringir.) varðandi það að klára þetta mál núna eftir tíðindi dagsins.