157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:08]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Núverandi ríkisstjórn tók við mjög góðu búi, fjárlögum fyrir 2025 sem samþykkt voru hérna í nóvember 2024. Þetta er barnaleg umræða sem hefur verið hér um að það hafi verið slæmt bú. Það sem er að koma í ljós núna er hvað þessi fjárlög hafa gengið vel eftir því að við sjáum merki um það í ársreikningi. Hins vegar voru gerðir fimm fjáraukar á síðasta ári. Nú er þetta allt að koma fram sem varað var við síðan í desember varðandi fjárlögin. Það var bætt við 143 milljörðum inn í fjárlögin, 9%; vörugjöld, kílómetragjald og ýmislegt fleira. Þetta fáránlega mál, sem ég hef lengi kallað versta mál ríkisstjórnarinnar en er kannski næstverst núna þegar Evrópusambandsinsdæmið er að koma inn, það er varað við því máli af öllum.(Forseti hringir.) Ríkisstjórnin er alla daga, allar vikur, alla mánuði núna að búa sér til vandræði. (Forseti hringir.) Verðbólgan er á fleygiferð og þetta lítur ekki vel út. Það þarf aga og festu í ríkisfjármálin. (Forseti hringir.) Sá agi er ekki til staðar hjá núverandi ríkisstjórn.

(Forseti (ÞSv): Forseti bendir þingmönnum á að ræða fundarstjórn forseta undir þeim lið og virða tímatakmörk.)