157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:11]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Ég vil nýta tækifærið og hrósa forseta fyrir fundarstjórn og fyrir að hafa sett á dagskrá fyrirspurnir til munnlegs svars. Um er að ræða mjög gott form sem ítrekað hefur komið upp í samtölum, sem ég hef verið hluti af, að hafi átt á hættu að deyja út. Svo virðist ekki vera. Við höfum verið með þó nokkra fundi á þessu þingi þar sem fyrirspurnir til munnlegs svars hafa verið á dagskrá og það eru að mörgu leyti mun dýnamískari umræður en t.d. sérstakar umræður. Einnig er hægt að eiga meira samtal við ráðherrann en gerist með skriflegum fyrirspurnum. Ég vil því hrósa hæstv. forseta fyrir það og kannski slá á að reynt hafi verið að gera það tortryggilegt að atkvæðagreiðslur séu ekki hér á dagskrá. Það er einmitt af því að við erum með fund þar sem fyrirspurnir til munnlegs svars eru á dagskrá, sem ég er mjög ánægður með.