157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:13]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar hér, með leyfi forseta, að vitna í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á bls. 35, í sviðsmyndagreininguna, í svartsýnu sviðsmyndina sem gerir ráð fyrir því að:

„erfiðar gangi að ná verðbólgu alla leið niður að 2,5% markmiði. Stýrivextir þurfa því að vera háir lengur til þess að stemma stigu við þrautseigum verðbólguvæntingum og atvinnuleysi verður meira á spátímanum. Aðstæður á alþjóðavettvangi valda hærra áhættuálagi sem eykur fjármögnunarkostnað fyrirtækja og dregur úr fjárfestingu. Hærri stýrivextir og erfiðari fjármögnunarskilyrði koma niður á einkaneyslu […] Að auki tekur lengri tíma að ná verðbólgu niður í markmið.“

Hvað segir svo þar undir? Nú vil ég að þingheimur hlusti:

„Ein alvarlegustu áhrif þess að sviðsmyndin gangi eftir felast í því að skorti hagstjórnina trúverðugleika er hún síður í færum til að milda efnahagsleg áhrif ytri áfalla.“ (Forseti hringir.)

Getur verið að það sé staðreyndin í dag? Er trúverðugleikinn farinn, virðulegur forseti?