hækkun stýrivaxta.
Virðulegur forseti. Há verðbólga gerir ekkert annað en að skerða kaupmátt fólks. Há verðbólga kemur verst niður á þeim sem verst hafa það í samfélaginu. Hún skerðir kaupmátt heimilanna dag frá degi. Orð hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar sýna í rauninni þá veruleikafirringu sem ríkisstjórnin er í. Hér koma forsvarsmenn atvinnulífsins og kalla eftir þjóðarátaki í því að ná niður verðbólgu og þess vegna hóf ég þessa fundarstjórn, virðulegur forseti, til að biðla til virðulegs forseta að ræða við hæstv. ríkisstjórn um þá atkvæðagreiðslu sem fram undan er, um mál sem búið er að benda á að muni kynda verðbólgubálið þegar aðrir kalla eftir því, m.a. Seðlabankinn og aðrir, (Forseti hringir.) að það verði numið staðar. Þá biðla ég til þín, virðulegur forseti, að hafa áhrif á hæstv. ríkisstjórn (Forseti hringir.) svo verðbólgubálið sé ekki áfram kynt hér úr sölum Alþingis.