hækkun stýrivaxta.
Frú forseti. Vaxtalækkunarferlið er stopp. Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir fólkið í landinu, fyrir okkur öll. Þetta er bara töluvert högg. Það hefur oft verið svo að hæstv. ráðherrar úr ríkisstjórn hafa hreinlega sett sérstakar umræður á dagskrá þingsins við minna tilefni. Ég held að það sé algerlega ljóst í mínum huga að það væri bragur á því að hér yrði sett á dagskrá hið fyrsta sérstök umræða um efnahagsmálin í landinu og það hlýtur að falla undir fundarstjórn forseta að óska eftir því, virðulegi forseti. Það gefur á bátinn í íslensku efnahagskerfi. Það er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar okkar hér á þingi að standa í lappirnar og bregðast við þegar svona kemur upp. Það er algjört lágmark (Forseti hringir.) að við tökum hér umræðu um hvernig við ætlum að ná vöxtum og verðbólgu niður.