157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:24]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Þetta er auðvitað áhugaverð umræða eins og svo oft áður og ég tek undir að það eru auðvitað vonbrigði að vextir hafi hækkað í morgun. Við þekkjum það Íslendingar auðvitað mjög vel að verðbólgu- og vaxtatölur eru yfirleitt talsvert hærri hér á Íslandi og hafa verið það í gegnum áratugina og það er hluti af okkar verkefni í þessum sal að bregðast við því og svo hafa auðvitað aðilar á vinnumarkaði sínu hlutverki að gegna og svo Seðlabankinn, þau tæki sem hann hefur og hann beitti einu þeirra í morgun eins og við þekkjum.

En varðandi fundarstjórnina þá langar mig að vekja athygli forseta á því að framíköllin, óróleikinn og það að vera að trufla ræðumenn í ræðustól á meðan þeir eru að tala, gerist ofsalega mikið hér á öðrum væng þingsalarins. Það er nú bara þannig. Ég verð að segja það alveg eins og er að mér finnst stundum menn þeim megin salar frekar dónalegir gagnvart þingmönnum, jafnvel þeim sem eru að koma hingað tiltölulega óvanir upp í pontu. Þetta finnst mér vera efni (Forseti hringir.) sem eigi vel heima undir liðnum fundarstjórn forseta.