hækkun stýrivaxta.
Virðulegi forseti. Ég vil ræða fundarstjórn forseta og vil bara taka það fram út af ræðu hv. þm. Sigmars Guðmundssonar að þingmenn mega kalla fram í eins og þeir vilja undir minni ræðu. Það truflar mig ekki og hefur ekki truflað mig fram til þessa þó að stjórnarliðar hafi gert það. En við verðum að ræða efnahagsmálin. Við verðum að ræða þá stöðu sem er komin upp og við verðum að breyta dagskrá þingsins svo það sé gert. Eitt sem verður náttúrlega að koma fram er að það virðist sem stjórnarliðar kunni ekki að lesa ríkisreikning eða fjárlög. (Gripið fram í: Nú?) Það hefur ekki verið halli á fjárlögum síðustu tíu árin, þrátt fyrir að hæstv. forsætisráðherra og hv. þingmenn séu að skrökva því. Það er bara ekki þannig. Reyndar var það þannig að 2025 hefði verið með afgangi ef fjáraukalög hefðu ekki komið til hjá núverandi ríkisstjórn. En það hefur verið halli frá 2019 af ástæðum sem við þekkjum og það er áhyggjuefni að ríkisstjórnin fari fram með og ætli að klára hér mál sem munu auka verðbólguþrýstinginn, (Forseti hringir.) hafa gert það fram til þessa, við þessar aðstæður. Svo horfa þau framan í þing og þjóð, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) því að virðulegi forseti gerir stundum athugasemdir við ummæli þingmanna, og skrökva beinlínis að þjóðinni.