157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:27]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að taka undir með hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni að það kunni að vera rétt að efna til sérstakrar umræðu um efnahagsmál og vaxtastefnu Seðlabankans. En mér finnst að hv. stjórnarandstaða ætti nú að hugsa sinn gang og nota ekki þennan lið til að atast í forseta og taka frekar til þess að hefja dagskrá þingsins og sýna þjóðþinginu og fólkinu í landinu bara þá virðingu að fara í gegnum þau mál sem eru á dagskrá. Það má vel vera að það sé rétt að taka þessa umræðu málefnalega og yfirvegað en þá ekki undir þessum dagskrárlið.