157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:30]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Já, ég get alveg tekið undir það að ég hef ekki alltaf verið barnanna bestur í þessu og það er stundum þannig að það verður óróleiki í þessum sal. Ég ætla samt sem áður að standa við þau orð mín að hann er áberandi svolítið mikið þarna hjá tilteknum hópi. Ég ætla að leyfa mér að hafa þá skoðun og svo hafa hv. þingmenn einhverja aðra skoðun á því eða einhverjar skoðanir á því hvernig mín framganga er hér í sal eða hefur verið í gegnum tíðina. Það er bara eins og það er. En auðvitað er það þannig að við hljótum að ræða efnahagsmálin hér í víðu samhengi í þessum sal. Þá ætla ég líka að árétta það sem ég sagði hérna áðan: Við Íslendingar þurfum alltaf að vera að ræða um verðbólgu og vexti vegna þess að verðbólga og vextir eru yfirleitt hærri hér, og nánast undantekningarlítið, heldur en í nágrannalöndunum. Það verður auðvitað að vera partur af jöfnunni. Þessar vaxtatölur sem Seðlabankinn birti í morgun eru auðvitað vonbrigði en að einhverju leyti eru það líka ytri aðstæður sem þar eru undir og er þá sérstaklega vísað til ástandsins í Íran. En auðvitað er það þannig að við þurfum alltaf að vera að taka þessa umræðu um efnahagsmál. (Forseti hringir.) Hvort þessi liður um fundarstjórn forseta sé best til þess fallinn veit ég ekki (Forseti hringir.) en ég hef þó a.m.k. skilning á því að stjórnarandstaðan nýti þann lið hér í dag í ljósi tíðinda dagsins.