157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:33]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég ætla að taka aðeins upp hanskann fyrir forseta. Hæstv. forseti hefur beint því til okkar hér að gæta að því að við höldum okkur við efni þessa liðar. Ég gerði athugasemdir við það áðan að það væri blæbrigðamunur á því hvernig forseti brygðist við. Vissulega er oft og tíðum flókið að lesa í hvernig umræðan þróast en hér stóð hæstv. ráðherra í pontunni rétt í þessu og var ekki að fjalla um fundarstjórn forseta, fékk engar ofanígjafir. Hér verður jafnt yfir alla ganga, frú forseti.

Annað sem mig langar að nefna er að hér opnaði hv. þm. Jón Pétur Zimsen á eitthvað sem ég held að sé löngu tímabært að hæstv. forseti taki til skoðunar. Um leið og hæstv. forseti vandar um fyrir okkur almennum þingmönnum, sem er bara eðlilegt og er hlutverk hæstv. forseta, þá mætti nú stundum setja aðeins leiðbeiningar út á bekkina hérna sitt hvorum megin við okkur.