hækkun stýrivaxta.
Virðulegur forseti. Ég kippi mér nú ekki upp við það þótt heilagur Sigmar Guðmundsson, hv. þingmaður, sé að vanda um fyrir mönnum þó að þeir séu að kalla fram í. Það er ágætt að vitna til þess sem ágætur þingmaður þá, Össur Skarphéðinsson, sagði í þinginu þegar þetta var til umræðu, að það væri steingelt þing þar sem ekki væri kallað fram í.
Hér kemur hæstv. orkumálaráðherra upp og segir að fólk geti treyst því eins og að sólin komi upp að planið virki. Ég minnist auglýsinga frá þessum sama flokki og hann tilheyrir fyrir kosningarnar síðast þar sem var kallað á breytingar: Kjósið Samfylkinguna ef þið viljið breytingar. Og fólk kaus Samfylkinguna og fékk breytingar, breytingar úr því að við vorum að ná mjúkri lendingu í efnahagsmálum eftir mikil áföll sem höfðu dunið á þjóðinni.
Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson fór ágætlega yfir það áðan; hamfarir, Covid og stríðin. (Forseti hringir.) Á þeim tíma yfirbauð Samfylkingin gjarnan þær ráðstafanir sem við vorum að grípa til með því að moka á fjórða hundrað milljarða úr ríkissjóði til að bjarga íslensku samfélagi. (Forseti hringir.) Það hafði auðvitað afleiðingar. Samfylkingin yfirbauð yfirleitt það sem við vorum að bjóða þá og gerðum þá. (Forseti hringir.) Við vorum að vinna okkur út úr þessu, við vorum að gera það með mjúkri lendingu, með því að ná stöðugleika og lækkun vaxta. (Forseti hringir.) En planið sem má treysta eins og sólin komi upp að morgni er að ekki er mikið búið að standa af þeim loforðum sem þá voru gefin.