157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:37]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Já, ákvörðun morgunsins krefst vissulega viðbragða og fyrst við erum hérna að benda á sökudólga, án þess að ég ætli að kalla þá slíka, vil ég minna á að orkuverð á heimsvísu fer hækkandi vegna stigvaxandi átaka og aðfangakeðjur um allan heim eru í uppnámi. En þetta er verkefni sem við verðum að geta tekist á við. Við munum standa við okkar, við munum skila hallalausum fjárlögum á næsta ári en hér verður fólk að átta sig á ábyrgð sinni, ekki bara inni í þessum sal. Við atvinnulífið og við smásala vil ég segja: Við fylgjumst með ykkur. Við samþykkjum ekki að hér verði til einhvers konar skálkaskjól fyrir verðhækkanir þótt ófriður aukist í heiminum.

Forseti. Við sitjum ekki undir því að fákeppnismarkaðurinn reyni á þolmörk íslenskra heimila. Verðlagningar hafa bein áhrif á lífskjör fólks og við jafnaðarmenn erum í liði með íslenskum heimilum og neytendum. Við stöndum enn þá frammi fyrir afleiðingum og ákvarðanafælni fyrri ríkisstjórna. Ég sagði hér áðan í hliðarherbergi: Takk fyrir hagvöxtinn. Ég fékk svarið frá stjórnarandstöðunni: Hvaða hagvöxt? Já, hvaða hagvöxt? Það var enginn hagvöxtur á mann frá árinu 2018. Hér verðum við að skapa raunverulega verðmætasköpun í landinu. Innviðaskuldinni verður ekki velt yfir á heimilin í landinu, ekki á fólk sem þarf að reiða sig á nærþjónustu, ekki á fólk sem þarf að greiða af fasteignalánum, ekki á fólk sem þarf heilbrigðisþjónustu og öruggar samgöngur. Þess vegna ætlum við ekki að hvika frá því að skila hallalausum fjárlögum 2027. Við munum sýna aga, við munum forgangsraða, við munum standa við okkar. Við munum ekki velta innviðaskuldinni á fólkið sem verst hefur það í íslensku þjóðfélagi. Það bara kemur ekki til greina og við erum stolt af verkum okkar.