Störf þingsins.
Forseti. Uppbygging framhaldsskóla um allt land er ekki aðeins menntamál, hún er lykilatriði í byggðastefnu og framtíð íslenskra samfélaga. Þar sem framhaldsskólar eru öflugir og aðgengilegir eflist samfélagið, fjölbreytni atvinnulífs vex og tengsl ungs fólks við heimabyggð styrkjast. Rannsóknir á Norðurlöndum sýna að fjárfesting á framhaldsskólastigi skilar sér í aukinni menntun, betri heilsu og hærri tekjum síðar á ævinni. Slíkar niðurstöður undirstrika að menntun á þessu stigi hefur langtímaáhrif, ekki aðeins fyrir einstaklinga heldur fyrir samfélagið í heild. Enn mikilvægara er að huga að byggðaþróun. Þegar ungt fólk fær tækifæri til að stunda nám í heimabyggð aukast líkurnar á því að það viðhaldi tengslum við svæðið. Alþjóðlegar rannsóknir benda til þess að menntunartækifæri utan stórborga hafi afgerandi áhrif á búsetuval síðar á lífsleiðinni og geti dregið úr brottflutningi og styrkt byggðir. Þetta er í samræmi við mína reynslu og upplifun, fædd og uppalin úti á landi. Við vitum að fyrstu árin eftir grunnskóla geta skipt sköpum. Ef við tryggjum að ungt fólk þurfi ekki að flytja burt of snemma styrkjum við tengsl þess við heimabyggð. Með því að byggja upp og efla okkar öflugu og góðu framhaldsskóla sem við eigum víða um land erum við að fjárfesta í fólkinu okkar og framtíð landsbyggðarinnar.
Frú forseti. Öflugir framhaldsskólar eru hornsteinn jöfnuðar, tækifæra og lifandi landsbyggðar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)