157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:41]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Frú forseti. Það er hægt að mæla lífsgæði með margvíslegum hætti en samfélagsleg virkni er þar snar þáttur, samfélagsvirkni allra. Mig langar því að segja ykkur sögu af vini mínum, Magnúsi Orra Arnarsyni, sem gaf mér góðfúslegt leyfi til að deila með ykkur sinni sögu. Hann kom inn í sjónvarpshópinn Með okkar augum fyrir allnokkrum árum, rétt tæplega tvítugur. Hann býr við kvíðaröskun, einhverfu, Tourette og væga þroskahömlun en við sáum það strax að hann hafði gríðarlegan áhuga á tækni og fljótlega sá einn reyndasti kvikmyndatökumaður landsins að þessi ungi drengur væri efni í góðan klippara og góðan kvikmyndatökumann. Á örfáum árum hefur það gerst í lífi þessa unga manns, sem býr með fjölskyldu sinni suður í Garði, að hann er farinn að framleiða sína eigin þætti. Hann hefur fengið styrki frá Íþróttasambandi fatlaðra til að fara út í heim og kvikmynda afreksfólk okkar úti í heimi, klippa þættina og selja RÚV. Hann er búinn að sýna tvo þætti í Bíó Paradís og RÚV er búið að kaupa einn þátt af honum og eina mynd sem verður sýnd á komandi misserum. Samfélagsvirkni skiptir sköpum. Og hvað er það annað sem skiptir öllu máli? Við skulum veðja á styrkleika fólks. Við skulum ekki alltaf elta uppi veikleika fólks; kvíðaröskun, Tourette, væga þroskahömlun eða hvað sem þetta allt saman heitir, vegna þess að það hafa allir hæfileika í þessu landi. Við þurfum bara að koma auga á þá og við þurfum að virkja þá. Við þurfum að gefa ekki bara sumum tækifæri í þessu landi, ekki bara flestum tækifæri í þessu landi, við eigum að gefa öllum tækifæri í þessu landi vegna þess að það hafa allir fram að færa. (Forseti hringir.) Þessi dæmisaga mín af Magnúsi Orra Arnarsyni, sem gaf mér leyfi til að segja þessa sögu sína hér í þessum sal, sýnir það og sannar.