Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ungir Sjálfstæðismenn auglýsa í dag eftir tengdri sleggju sem sást síðast í kosningayfirlýsingum Samfylkingarinnar fyrir rúmu ári síðan. Gera má ráð fyrir að sleggjan sé í góðu standi, enda lítið sem ekkert verið notuð eftir kosningar. Stýrivextir sem voru á niðurleið fyrir síðustu kosningar í tíð síðustu ríkisstjórnar hafa nú verið hækkaðir eftir nokkurra mánaða kyrrstöðu. Loforð ríkisstjórnar um að ná niður verðbólgu, um að ná niður vöxtum, hafa markvisst verið svikin. Atvinnuleysi hefur ekki mælst meira síðan í Covid. Við stefnum í öfuga átt frá markmiðum um stöðugra og betra efnahagsástand. Á sama tíma setur ríkisstjórnin aðild að ESB á dagskrá; aðild sem var sannarlega ekki á dagskrá fyrir síðustu kosningar og ekkert ákall eftir nema mögulega frá félagsmönnum í Viðreisn. Er það nema von að fólk sé farið að velta því fyrir sér hvort getuleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum tengist ESB vegferðinni?
Hæstv. forsætisráðherra hefur sjálf sagt, með leyfi forseta:
„Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið.“
Það er ekki lengur hægt að tala um sinnuleysi. Það virðist vera hrein og klár einbeitni að viðhalda hér háum vöxtum og verðbólgu. Ríkisstjórnin hækkaði útgjöld um 143 milljarða í fyrstu fjárlögum sínum þrátt fyrir háværar viðvaranir um áhrifin á verðbólgu og vexti. Næst á dagskrá er launavísitölumál ríkisstjórnarinnar; mál sem allir helstu sérfræðingar landsins hafa varað við að auki verðbólguþrýsting og að sjálfsstýring ríkisútgjalda geri þau ósjálfbær. Ráðherrarnir í ríkisstjórninni vita betur og við hljótum að spyrja okkur að því af hverju þeir gera þá ekki betur.