157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Störf þingsins.

[16:02]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Þjóðin vonar og þjóðin bíður en sofandi er ríkisstjórn engu að síður. Hvar eru loforð um bjartari daga, sleggjuna stóru og blómstrandi haga? Fátt er að frétta nema um hækkandi skatta, tollhlið á vegum og gjaldtöku bratta. Og hvernig skal greiða allt útgjaldaprjálið? Skattpína millistéttina? Já, það er nú málið. Við erum með plan, var eitt sinn sungið. Í dag heyrist minna því planið er sprungið. Væri ekki nær að hlusta aðeins betur því skollinn er á hér verðbólguvetur? Þá er nú gott að eiga hér vini, reynslunni ríkari dætur og syni. Með samvinnu snúum hér seglum í vindi, setjum á verðbólgusíu í skyndi. Þannig má leysa þann þráláta vanda heimilum landsins öllum til handa. Með bjartsýni, atorku og dugnaði skal halda, til þess var nú þingheimur kjörinn til valda.

(Gripið fram í: Heyr, heyr.)