157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Störf þingsins.

[16:07]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Hæstv. forseti. Ég vil vekja athygli þingheims á stöðu Kristnesspítala sem er mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi og raunar fyrir landið allt. Þá er einnig vert að nefna að hornsteinn var lagður að Kristnesspítala þann 25. maí 1926 og spítalinn vígður þann 1. nóvember 1927 þannig að spítalinn fagnar bráðum 100 ára afmæli. Þegar við tölum um heilbrigðisþjónustu úti á landi þá erum við ekki bara að tala um heilsugæslur og bráðamóttökur heldur líka endurhæfingu, bata og það að fólk geti komist aftur til virkni eftir veikindi eða slys. Þar gegnir Kristnesspítali lykilhlutverki. Undanfarnar vikur hafa þó borist þaðan mjög alvarleg tíðindi. Fyrst var greint frá því að erfiðlega hafi gengið að manna starfsemi Kristnesspítala. Það er hluti af stærri umræðu um mönnun í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni sem ég hef áður tekið hér upp í þingsal og mun halda áfram að gera. Síðan bættist grátt ofan á svart þegar mygla fannst í húsnæði spítalans. Einni hæð hefur nú verið lokað vegna myglu og enn er óvíst hvort grípa þurfi til frekari lokana eða skerðingar á þjónustu.

Hæstv. forseti. Of oft fáum við fréttir af myglu og rakaskemmdum héðan og þaðan en þetta er allt birtingarmynd stærri vanda. Þetta snýst um það hvað gerist þegar uppsafnaður innviðavandi fær að þróast svo lengi að hann fer að ógna sjálfri kjarnastarfseminni. Þá erum við komin á hættulegan stað. Þá eru það ekki lengur bara fasteignamál, það er orðið heilbrigðismál. Finnur Ingvi Kristinsson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, segir í góðum pistli, með leyfi forseta:

„Sjúkrahúsið á Akureyri ber ábyrgð á heilbrigðisþjónustunni en áskoranir sem snúa að fasteignum og innviðum kalla á stefnumótandi ákvarðanir á vettvangi ríkisins. Þar þarf að skýra ábyrgð, tryggja fjármagn og móta framtíðarsýn um hvernig best sé að haga eignarhaldi og umsýslu húsnæðis.“

Þetta er einmitt kjarninn. Það er ástæða til að rifja upp umræðu um frumvarp um fasteignir sjúkrahúsa ohf. frá síðasta löggjafarþingi en þar var einmitt markmiðið að tryggja faglega og hagkvæma framkvæmd um umsýslu sjúkrahúsbygginga frá sérhæfðum aðila. Ég hvet hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra til að koma aftur inn í þingið með það góða mál. Ég hvet jafnframt þingheim allan til að huga alvarlega að stöðunni á Kristnesi. Við megum ekki bíða eftir því að húsnæðisvandinn éti sig enn frekar inn í þjónustuna. Kristnesspítali er of mikilvægur til þess.