Störf þingsins.
Frú forseti. Í dag beini ég í ræðu minni sjónum að lögreglunni og er það ekki í fyrsta skipti sem ég ber þar niður hér í þessum ræðustól. Ég ber hag lögreglunnar í landinu fyrir brjósti og ég tel nauðsynlegt að vekja reglulega athygli á störfum og stöðu lögreglunnar. Fyrir skömmu átti ég samtal við yfirmann í lögreglu og var umræðuefni okkar mikilvægir innviðir í okkar landi og hvernig staðið yrði að því að verja umrædda innviði ef til þess kæmi að þá þyrfti að verja. Umræddur viðmælandi minn sagði að það væri nauðsynlegt að skilgreina lögregluna sem mikilvægan innvið, enda kæmi það í hlut hennar að vernda mikilvæga innviði í þeim aðstæðum að ógn beindist að þeim. Það væri því nauðsynlegt að búið væri þannig að lögreglunni að henni væri kleift að vernda hina mikilvægu innviði svo og æðstu ráðamenn þjóðarinnar.
Við skulum halda því til haga, frú forseti, að íslenska lögreglan fær ekki stuðning frá sambærilegum stofnunum og lögregla í öðrum löndum getur reitt sig á við tilteknar aðstæður. Ég á þar við stofnanir sem sinna sérstaklega landvörnum, þ.e. liðsmenn hers. Við tilteknar aðstæður getur komið til þess að lögregla komist ekki yfir að sinna öðru en vernd mikilvægra innviða og myndi þá önnur löggæsla leggjast af.
Íslenska lögreglan nýtur mikils trausts almennings hér á landi og er það raunar svo að það vekur athygli erlendra lögregluliða hve mikið traust íslenskur almenningur ber til lögreglunnar. Við verðum að búa þannig að lögregluliðum landsins að þeim sé kleift að sinna þeim verkefnum sem þeim eru ætluð, hvort tveggja við hefðbundnar aðstæður en einnig verður að gera ráð fyrir því að upp komi mjög óvenjulegar aðstæður sem kalla á að þjóðin þurfi að laga sig að aðstæðum og verkefnum sem hinum breyttu aðstæðum fylgja. Lögregla þarf að hafa yfir að ráða nægum mannafla, viðeigandi tækjakosti og eftir atvikum öðrum viðeigandi úrræðum.
Ég leyfi mér að hvetja til þess að búið sé þannig að lögreglunni á Íslandi að hún geti með sóma sinnt þeim verkefnum sem henni eru ætluð. Við skulum gera okkur grein fyrir því að lögreglan sjálf er og verður mikilvægur innviður, kannski sá innviður sem við þurfum fyrst að tryggja.