áhrif loftgæða í Reykjavík á útivist leikskólabarna.
Virðulegur forseti. Ég ætla að þakka fyrir að málefni leikskólans séu tekin upp í þessum sal. Það gerist allt of sjaldan. Ég held að okkur sé öllum kunnugt um það hversu mikilvægt þetta fyrsta skólastig er og sífellt fleiri rannsóknir benda til þess að það sé jafnvel mun mikilvægara en áður var ætlað. Og þrátt fyrir að sveitarfélögin reki leikskólana þá eru til lög um leikskóla og reglugerð sem ráðherra ber ábyrgð á. Ég verð því að segja eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson að ég saknaði svolítið hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, sem tekur á málunum og gengur í verkin því að bæði væri auðvitað hægt að hringja í Ráðhúsið og sjá til þess að götur væru þrifnar og þannig koma í veg fyrir slæm loftgæði. En hæstv. ráðherra vísaði líka í ábyrgð hæstv. umhverfisráðherra í þessum efnum og þá ætla ég að minna hæstv. ráðherra á það að hún er ekki bara ráðherra þessa málaflokks heldur líka oddviti í ríkisstjórninni sem hefur sagst vera samhentasta ríkisstjórnin sem sögur hafa farið af. Þetta er kannski ekki stærsta málið til að leysa en ég ætla að nota tækifærið og hvetja hæstv. ráðherra til að ganga í málið því samkvæmt reglugerð og lögum um leikskóla þá ber okkur að tryggja öryggi barna, m.a. loftgæði. Það stendur skýrt í reglugerðinni og þá hlýtur ábyrgðin að vera okkar eða hæstv. ráðherra.