helmingamokstur.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því sem hæstv. ráðherra talaði um, að mögulega væri hægt að koma til móts við einhver sveitarfélög út frá fjölda íbúa og ég velti því upp hvort það sé í rauninni ekki verið að gera það í dag með greiðslum úr jöfnunarsjóði eða hvort það hafi breyst þegar við breyttum lögum um jöfnunarsjóð hérna síðast á þinginu. Það var alltaf þannig að það voru framlög til sveitarfélaga út frá kostnaði vegna snjómoksturs. En hér erum við að ræða skiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og, virðulegur forseti, mig langar bara að kasta því hér inn í umræðuna að ég fékk svar við fyrirspurn sem ég beindi til hæstv. fjármálaráðherra í dag varðandi margumrætt kílómetragjald. Það voru færð þau rök fyrir kílómetragjaldinu að það væri til þess að halda uppi vegum í landinu, bæði rekstri og nýframkvæmdum, en helmingurinn af öllum kílómetrum vegakerfisins er á könnu sveitarfélaganna. Ég var í rauninni að spyrja þarna hvort það stæði til að dreifa kannski þessum fjármunum eitthvað til sveitarfélaga. Ég vil beina því til hæstv. ráðherra að skoða það sem ráðherra sveitarstjórnarmála hvort það sé sanngjarnt að hér innheimti ríkið háar fjárhæðir af fólki sem er að keyra um götur landsins þegar helmingurinn af þessum götum er á forræði sveitarfélaganna og þar af leiðandi ábyrgð og kostnaður.