157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

helmingamokstur.

430. mál
[16:46]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þeim þingmönnum sem tóku hér til máls, þar á meðal hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni. Það er alveg hárrétt, ég hafði í huga Þingeyjarsveit þegar við tölum um fámenn og stór sveitarfélög. Ég var ekki með hugmyndir um Tjörneshrepp en það er gott að vita að vegir séu mokaðir þar. En áhugi minn á sameiningu sveitarfélaga lýtur að því að sveitarfélög hafi burði til að sinna þeirri þjónustu sem er kveðið á um með lögum. Það er ekki umræðuefni þessa máls hér.

Varðandi jöfnunarsjóðinn sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom inn á þá er þetta ekki á könnu jöfnunarsjóðs, hann sér ekki um þessi mál. Varðandi kílómetragjaldið þá er það þannig að við erum að breyta úr bensíngjaldi yfir í kílómetragjald. Það er bara skattheimta ríkisins og mjög góð rök fyrir því að gera það. Bílar eru orðnir miklu sparneytnari en áður fyrr og gjöld af bifreiðum hafa farið hríðfallandi undanfarin ár vegna sparneytinna bíla, rafmagnsbíla o.s.frv. Rafbílar nota að sjálfsögðu ekki bensín og sparneytnir bílar greiða minna bensíngjald. En það er gott að við séum komin á sparneytna bíla. Þetta er fyrir ríkissjóð og svo er þessu deilt út af fjárlögum á hverju ári.

Vissulega eru sveitarfélagavegirnir mjög miklir en varðandi vegi sem ríkið á þá er endurstofnvirði þeirra um 1.200 milljarðar kr., þetta er ein verðmætasta eign ríkisins og það er gríðarlega mikilvægt að halda þeim vegum við og við ætlum svo sannarlega að gera stórátak hvað það varðar.

Reglunni um helmingamokstur er beitt til að tryggja sanngjarna og jafna skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga í dreifðum byggðum. Þá eru sveitarfélög eins og Þingeyjarsveit sem koma þar til greina. Það er gríðarlega mikilvægt að við höldum þessari þjónustu áfram. En það kemur alltaf að sjálfsögðu til greina að ríkið komi til móts við þessi fámennu og víðfeðmu sveitarfélög með mikið umfang helmingamoksturs vega, t.d. með því að skipting kostnaðar taki mið af fjölda íbúa. Þá þarf að sjálfsögðu að meta þörfina, (Forseti hringir.) t.d. skólaakstur eins og í Þingeyjarsveit og á öðrum stöðum, og að við förum vel með fjármuni skattborgaranna hvað þetta varðar, að við nýtum þá þar sem virkileg þörf er.

Ég þakka fyrir þessa umræðu og þessa fyrirspurn.