157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

fjölskyldusameiningar.

448. mál
[17:43]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Frú forseti. Fram kom ekki alls fyrir löngu að á annan tug barna sem hingað hafa komið á grundvelli fjölskyldusameiningar hefur engin blóðtengsl við þá einstaklinga sem þau áttu að sameinast á grundvelli þessarar svokölluðu fjölskyldusameiningar. Á annan tug barna, engin blóðtengsl — þetta er raunveruleikinn hér á allra síðustu árum. Í því sambandi kom fram að stjórnvöld hér á landi hafa ekki tiltækan tækjabúnað til að greina lífsýni áður en börnin koma hingað til lands. Þegar svona háttar til verða mál þessara barna að barnaverndarmáli hér á landi og barnið fer í forsjá íslenskra stjórnvalda. Það hefur einnig komið fram að engar rannsóknir hafa verið gerðar á afdrifum þeirra barna sem hafa komið hingað með þessum hætti; barna sem náð hafa sjálfræðisaldri hér á landi og horfið úr forsjá íslenskra stjórnvalda en þá virðist enginn vita nákvæmlega hvað verður um þetta fólk.

Frú forseti. Svo virðist sem engin heildstæð stefna hafi verið mörkuð um vinnulag við þessi mál, hvorki á vettvangi barnamálamálaráðuneytisins né dómsmálaráðuneytisins, til að mynda hvort senda eigi þessi börn sem engin blóðtengsl hafa hér á landi til yfirvalda í sínu heimalandi. Það hlýtur að vera úrlausnarefni á verksviði beggja þessara ráðuneyta að ákveða hvað gera á við þessi börn og ríkisstjórnin þarf að móta einhverja stefnu. Nú er það svo í nágrannalöndum okkar að víða er krafist DNA-prófs áður en tekið er við ósjálfráða einstaklingum til að sanna blóðbönd við þá aðila sem sameinast á en það virðist ekki vera gert hér á landi. Hvers vegna er slíkt stefnuleysi látið viðgangast hér, frú forseti, með þeim afleiðingum að í ljós kemur að hér eru tugir barna sem engin blóðtengsl hafa við nokkra lifandi sálu hér á landi? Hæstv. dómsmálaráðherra þarf að upplýsa hvað sé að gerast í hennar ráðuneyti, ef eitthvað, hvað varðar fjölskyldusameiningar og hvort taka eigi upp stefnu nágrannalandanna þar sem fjölskyldusameiningar geta ekki átt sér stað af neinu tagi nema að undangengnu DNA-prófi sem staðfestir blóðtengsl.

Af þessu tilefni spyr ég hæstv. ráðherra: Hverjar eru nákvæmlega fyrirætlanir hæstv. ráðherra um að breyta framkvæmd hvað varðar fjölskyldusameiningar í útlendingamálum? Hyggst hæstv. ráðherra gera fyrirliggjandi DNA-próf að skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu í útlendingamálum?