fjölskyldusameiningar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og fyrirspyrjanda fyrir framtakið og hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er sláandi að heyra það að hér hafi komið tugir barna hingað til lands sem hafa engin blóðtengsl hér á grundvelli fjölskyldusameiningar. En ég heyri það sem hæstv. ráðherra sagði, að þetta væru upplýsingar sem kæmu út úr vinnu sem væri þegar hafin og jafnvel yfirstaðin í dómsmálaráðuneytinu. Það er gott að sjá að það sé áfram verið að taka til en við ættum að setja þessi mál framar á dagskrá, við ættum að setja þau í enn meiri forgang. Ég efa það ekki að það sé unnið markvisst í þessum málaflokki. Mig langaði að nefna hér fyrirspurn sem ég lagði fram síðastliðið haust sem tengist fjölskyldusameiningum, hún varðar bakgrunnsathuganir á þeim sem koma hingað á grundvelli fjölskyldusameiningar. Ég hef miklar áhyggjur af því að slíkar athuganir séu í mýflugumynd og það er í rauninni staðfest með ákveðnum hætti í þessu svari sem ég fékk frá hæstv. dómsmálaráðherra. Mig langaði að nefna það örstutt sem innlegg í þessa umræðu.