fjölskyldusameiningar.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir fyrirspurnina og ráðherra fyrir svarið. Ég vil taka fram, bara til að upplýsa salinn, að fjölskyldusameiningar er ekki stjórnsýslulagamál, þær eru mannréttindamál. Réttindi barna til að sameinast foreldrum sínum og réttindi foreldra til að sameinast börnunum sínum. DNA-próf sem skylda er að brjóta á barnasáttmálanum um að styrkja og efla tengsl barna við foreldra sína. Ég ætla að tala um börnin frá Palestínu sem eru að koma hingað og hafa fengið fjölskyldusameiningu á Íslandi, þá eru flestir foreldrar þeirra ekki á lífi lengur þannig að það að hafa DNA-próf sem skyldu er að brjóta á réttindum þeirra og taka ekki tillit til mannúðaraðstoðar og hvaðan þau koma og af hverju þau eru koma. (Forseti hringir.) Við ættum að spyrja okkur hvort DNA-próf eigi ekki að vera síðasta úrræðið, ekki fyrsta skilyrðið.