157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

fjölskyldusameiningar.

448. mál
[17:55]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir umræðuna og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég bind vonir við þá endurskoðunarvinnu sem stendur yfir í ráðuneytinu og hvet eindregið til þess að tekið verði rækilega á þessum þáttum. Sama hvað hver segir þá eru fjölskyldusameiningar og rúmar reglur þar um mikill segull inn í landið ef maður reynir að horfa heildstætt á kerfi útlendingamála. Mér finnst að verkefnið núna eigi að snúast um að sníða slíka segla af kerfinu eins og frekast er unnt þannig að þar má heldur ganga lengra en skemur. En það breytir því ekki að auðvitað hefur maður samúð með bagalegum og ómögulegum aðstæðum sem margir eru í. En hér erum við að móta kerfi útlendingamála á Íslandi út frá hagsmunum almennings og þá verður, því miður, þegar maður horfir á þetta út frá hinum þáttunum, að hugsa um heildarhagsmuni samfélagsins til lengri tíma. (Forseti hringir.) Það felur í sér að endurskoða þetta og takmarka eins og mögulegt er. Það er einfaldlega pólitíski raunveruleikinn.