157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

fjölskyldusameiningar.

448. mál
[17:56]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu og fagna því sem hæstv. ráðherra segir hér og þeirri vinnu sem er í ráðuneytinu í þessum málum. Ég ítreka bara enn og aftur að það verður ekki mikil fyrirstaða hér í þinginu við að taka á móti þessum málum og styðja ríkisstjórnina í að gera vel þar. Við hvetjum hæstv. ráðherra til að koma með þau mál sem fyrst og vinna það hratt en vel að sjálfsögðu. Það sem mig langaði samt aðeins að koma inn á er að í þessum málum er ekki alltaf lausnin að breyta bara lögunum. Það þarf líka að ganga úr skugga um það að framkvæmdin nýti þær lagaheimildir sem við höfum nú þegar, að framkvæmdin sé ekki að skapa einhverja leka í kerfinu eða taka of veikt á málum. Hér áður fyrr var tryggt að það væri hægt að gera tannrannsóknir og lögum hefur verið breytt sem þrengja að fjölskyldusameiningum nú þegar (Forseti hringir.) og annað slíkt. Það má gera betur þar. En við verðum að passa að framkvæmdin nýti sér þau úrræði sem þó eru til staðar.